Fjöldi fólks enn á lífi í rústunum

Björgunarsveitarfólk í Venesúela er enn að finna fólk á lífi í rústum húsa eftir jarðskjálftana í Venesúela. Rúmlega tveir og hálfur sólarhringur eru liðnir frá hamförunum. Ættingjar þeirra þúsunda sem enn er saknað eru afar ósáttir við það hversu björgunarstörf ganga hægt. Aðstæður til leitar og björgunar eftir jarðskjálftana við norðurströnd Venesúela eru afar erfiðar. Fjöldi eftirskjálfta gerir leitarmönnum erfitt fyrir og þar sem skemmdirnar voru mestar, í héraðinu La Guaira, hefur ekki verið hægt að koma mörgum þungavinnuvélum til að komast að þeim sem eru fastir í rústunum. LÍKLEGT AÐ ÞÚSUNDIR SÉU UNDIR RÚSTUNUM Upptök skjálftanna voru skammt vestur af héraðinu en þeir voru tveir og urðu með innan við mínútu millibili. Annar þeirra var 7,2 en hinn margfalt öflugri, 7,5 og varð til
Fjöldi fólks enn á lífi í rústunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd