Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet slegið

Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet var slegið í Danmörku nú í hádeginu. Hiti mældist 36,6 stig á H.C. Andersen flugvellinum norður af Óðinsvéum. Hitabylgja hefur leikið íbúa víða í Evrópu grátt á síðustu dögum og hitamet fallið víða, en þau hafa flest verið fyrir júnímánuð, því mestur hiti mælist yfirleitt í júlí eða ágúst. HLÝJASTA JÚNÍNÓTT FRÁ UPPHAFI MÆLINGA Nú er um 34 stiga hita í Kaupmannahöfn en þar hefur verið mjög hlýtt allan sólarhringinn. Á eyjunni Fanø í Norðursjó undan ströndum Vestur-Jótlands fór hitinn lægst í tuttugu og tvö komma fimm stig í nótt. Þetta var því hlýjasta júnínótt í landinu frá upphafi mælinga 1874.
Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet slegið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd