Stórhættulegt atvik: Öryggisverðir yfirbuguðu hnífamann í Hólagarði

Maður vopnaður stórum hnífi eða sveðju réðst á öryggisvörð inni á Álfinum Sportbar í Hólagarði, Lóuhólum, í gærkvöld. Öryggisverðir frá fyrirtækinu Top Guard sinntu þar öryggisgæslu en maðurinn kom inn á barinn og lét vægast sagt ófriðlega. Samkvæmt dagbók lögreglu ógnaði maðurinn börnum með hnífi og reyndi að ræna af þeim hlaupahjóli. Segir í dagbókinni að lögregla hafi síðan handtekið manninn.
Stórhættulegt atvik: Öryggisverðir yfirbuguðu hnífamann í Hólagarði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd