Rússnesk yfirvöld eru sögð hafa notað búnað ísraelska hugbúnaðarfyrirtækisins Cellebrite til að komast inn í síma stjórnarandstæðings. Rannsóknargögn úr virkri rannsókn héraðssaksóknara á Íslandi birtust í kynningarmyndbandi fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur verið gagrýnt fyrir að leggja pólitískum ofsóknum lið með því að selja þjónustu sína til ríkja sem gerst hafa uppvís að grófum mannréttindabrotum.Þetta kemur fram í frétt breska fjölmiðilsins Guardian sem byggir á niðurstöðum rannsóknar sem framkvæmd var af Citizen Lab, rannsóknarstofu innan háskólans í Toronto.Þar segir að stjórnvöld í Rússlandi hafi notað búnað frá ísraelska fyrirtækinu Cellebrite til að komast yfir gögn í síma stjórnarandstæðingsins Andrey Pivovarov, nokkrum mánuðum eftir að fyrirtækið sagðist hafa rift samningum sínu