Ein versta hitabylgja sem dunið hefur yfir Evrópu

Evrópubúar eru að kikna undan skæðri hitabylgju sem geisað hefur dögum saman og ekkert útlit fyrir að ástandið lagist að ráði fyrr en í fyrsta lagi á sunnudag. Þangað til munu um eða yfir 150 milljón manns búa við 35 stiga lofthita eða þaðan af hærri, og mikinn loftraka að auki. Þetta á ekki síst við í stórborgum og útlit er fyrir að þetta muni valda íbúum um 400 borga álfunnar meiri hitaáraun en staðfestar sögur fara af , en með hitaáraun er átt við álag af samspili hita og raka á líkama fólks og kælikerfi hans. Hitinn fer reyndar örlítið lækkandi allra vestast á meginlandinu, en hækkar í staðinn eftir því sem austar dregur.Rauðar viðvaranir vegna ofsahita, allt að og jafnvel yfir fjörutíu stigum, hafa verið gefnar út í minnst fimmtán Evrópulöndum, þar á meðal Belgíu, Þýskalandi, Póllandi
Ein versta hitabylgja sem dunið hefur yfir Evrópu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd