Sex söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar

Sex söngvurum hefur verið boðin staða við nýju Þjóðaróperuna. Þetta eru Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir messó-sópran, Gunnar Björn Jónsson tenór, og Kristján Ingi Jóhannesson barítón, Harpa Ósk Björnsdóttir sópran og Ragnar Pétur Jóhannsson bassi.Þau fjögur fyrrnefndu taka til starfa 15. september og taka þátt í opnunarviðburðinum Undir sömu stjörnu sem verður frumsýndur í Hofi á Akureyri 18. október.Í tilkynningu frá Óperunni segir að söngvararnir sex taki allir þátt í lykilverkefni næsta leikárs, sem er uppsetning á Falstaff eftir Giuseppe Verdi en hún verður frumsýnd 6. mars 2027. Þjóðaróperan var sett á stofn í fyrra undir hatti Þjóðleikhússins en komandi leikár er það fyrsta frá stofnun hennar.
Sex söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd