Vegna óhappa í Gotta-rennibrautinni í Sundhöll Selfoss að undanförnu hefur brautinni verið lokað tímabundið. Börn hafa slasast í brautinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg og þar segir ennfremur: „Rennibrautin verður lokuð um óákveðinn tíma á meðan unnið er að því að fara yfir öryggismál og leita lausna til að tryggja örugga notkun hennar í framtíðinni.Við leggjum ríka áherslu á öryggi gesta okkar og þökkum fyrir skilning og þolinmæði á meðan unnið er að úrbótum.Með von um skilning,