Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu

Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi hefur verið lokað tímabundið vegna slysahættu. Í tilkynningu frá Sveitafélaginu Árborg kemur fram að ákvörðunin sé tekin þar sem börn hafi slasast í rennibrautinni. Hún verði því lokuð meðan farið er yfir öryggismál og leitað lausna til að tryggja örugga notkun til framtíðar.Margir bæjarbúar kveðja sér hljóðs í athugasemdum við tilkynningu bæjarins á Facebook. Segja margir að lokunin sé löngu tímabær; rennibrautin sé slysagildra.Gotta-rennibrautin er gul og kassalaga, eins og ostur í laginu. Gengið er upp þröngan stiga en mjög lágt er til lofts, bæði í stiganum og í brautinni sjálfri. Gotta-rennibrautin.Árborg
Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd