Úkraínski blaðamaðurinn Ihor Stakh á von á því að týna lífinu ef honum verður gert að snúa aftur til Úkraínu. „Það er stríð í landinu. Kannski verð ég handtekinn og sendur í herinn. Ég á ekki von á að lifa af ef ég þarf að fara þangað aftur. Á Íslandi líður mér eins og heima,“ segir hann í samtali við DV. Ihor kom til Íslands árið 2019 vegna ofsókna sem tengdust starfi hans sem blaðamaður og ári síðar fékk hann alþjóðlega vernd.