Útlit er fyrir nokkuð vætusamt veður um helgina. Í nótt og í fyrramálið gengur í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land.Í dag er von á suðaustlægri átt og rigningu um landið sunnan- og vestanvert. Þó verður úrkomulítið um tíma eftir hádegi á suðvesturhorninu. Fyrir norðan og austan verður að mestu þurrt og gæti hiti náð allt að 17 stigum. Seinna í kvöld byrjar hins vegar að rigna þar.Í nótt og í fyrramálið gengur í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Mesta hvassviðrið verður á norðvestanverðu landinu þar sem spáð er norðaustan 10-15 m/s og hviðum yfir 25 m/s við fjöll. Upp úr hádegi fer að draga úr vindi og annað kvöld stefnir í hæga breytilega átt.Á mánudag snýst í suðvestanátt með skúrum víða um land og jafnvel útlit fyrir hellidembur seinni partinn á Norðausturlandi.