Óraunhæft að ná markmiðum um liðsafla Þýskalandshers án þess að endurvekja herskyldu

Þjóðverjar eiga í erfiðleikum með að skrá nógu marga nýliða í her landsins til að mæta markmiðum sínum um herstyrk.„Ef við náum ekki markmiðum okkar með nýskráningum sjálfboðaliða í herinn þá þurfum við að endurvekja herskyldu. Þetta þarf að ákveða fyrir 31. júlí á næsta ári,“ segir Thomas Röwekamp, formaður varnarmálanefndar þýska sambandsþingsins, í samtali við AFP.Röwekamp segir Evrópu allri stafa ógn af Rússum. Ríki álfunnar þurfi þar að auki að efla varnir sínar vegna þess hve óútreiknanleg stjórnvöld í Bandaríkjunum séu. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú þegar greint frá því að Bandaríkin ætli að fækka hermönnum sínum í Evrópu.Stjórnvöld í Berlín hafa það að markmiði að fjölga í herliði sínu. Til stendur að fjöldi hermanna verði orðinn 260 þúsund fyrir árið 2035. Þeir eru 185 þ
Óraunhæft að ná markmiðum um liðsafla Þýskalandshers án þess að endurvekja herskyldu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd