Fyrirtæki Quang Lé komið í flutningabransann

Eignarhaldsfélag í eigu víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé býður upp á flutningaþjónustu. Quang Lé rak fjölda veitingastaða í Reykjavík og hefur verið til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir meint mansal. Fjöldi meintra brotaþola er meira en 30, segir Gunnar Axel Davíðsson lögreglumaður sem stýrir rannsókninni.Fyrirtækið heitir NQ Moving og býður upp á þjónustu flutningsmanna sem hlaða og afferma flutningabíla. Hægt er að panta einn flutningsmann eða tvo og bifreið með.Flutningsþjónustan er rekin í fyrirtækinu NQ fasteignir ehf. sem er í eigu Quang Lé. Þetta er fyrirtækið sem meðal annars átti Herkastalann svokallaða, hús hjálpræðishersins í Kirkjustræti í miðbæ Reykajvíkur. Upplýsingar um þetta koma fram á heimasíðu NQ Moving þar sem einnig er gefið upp símanúmer fyri
Fyrirtæki Quang Lé komið í flutningabransann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd