Ógnaði börnum með hnífi og reyndi að ræna hlaupahjóli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt mann sem ógnaði börnum með hnífi í tilraun til að ræna hlaupahjóli. Í morgunpósti lögreglu segir að hann hafi verið í mjög annarlegu ástandi. Frá klukkan 17 í gær og til klukkan 5 í morgun rötuðu 69 verkefni á borð lögreglu. 8 gistu fangageymslur í morgunsárið.Lögreglunni barst tilkynning um mann sem stundaði sjálfsróun í runna fyrir framan ungmenni. Henni barst einnig tilkynning um par sem stundaði samfarir í sundlaug fyrir framan sundlaugargesti, þar á meðal börn.Í dagbók lögreglu segir að hún hafi farið á vettvang í kjölfar beggja tilkynninga til að rannsaka málið. Ekki fylgir sögunni hverjar málalyktir urðu.Maður sem gerði tilraun til að stela hjóli við heimahús var handtekinn. Hann reyndist vera með vopn á sér. Lögreglan grein
Ógnaði börnum með hnífi og reyndi að ræna hlaupahjóli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd