Ísrael og Líbanon hafa undirritað þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum sem ætlað er að tryggja frið í Líbanon.Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti þetta í gærkvöld. Samkomulagið er afrakstur langra viðræðna í Washington sem Bandaríkin hafa haft milligöngu um.Rubio sagði enn mikla vinnu fram undan hjá báðum ríkjum en að þetta væri fyrsta skrefið í átt að friði milli ríkjanna.Líbanon dróst inn í stríðið í Mið-Austurlöndum í byrjun mars þegar Hezbollah hóf árásir þaðan á Ísrael. Líbönsk yfirvöld segja yfir 4.200 hafa verið drepna í árásum Ísraelshers í landinu. Rúmlega milljón Líbanar hafa yfirgefið heimili sín síðan árásirnar hófust. ÍSRAEL OG HEZBOLLAH SAMÞYKKTU VOPNAHLÉ Í SÍÐUSTU VIKU SEM VARÐI STUTT Samkomulagið kveður á um að bæði Ísrael og Líbanon lýsi yfir