Bandarísk stjórnvöld hafa veitt gervigreindarfyrirtækinu Anthropic heimild til þess að veita smáum hópi netöryggisfyrirtækja í Bandaríkjunum aðgang að gervigreindarlíkani fyrirtækisins, Mythos 5. Þetta hefur AFP eftir talsmanni fyrirtækisins.Samband Anthropic og ríkisstjórnar Donalds Trumps hefur verið stormasamt undanfarna mánuði. Lokað var fyrir aðgang að gervigreindarlíkaninu Mythos 5 fyrr í mánuðinum. Bandarísk stjórnvöld sögðu það gert því gervigreindarlíkanið gæti ógnað þjóðaröryggi.Fyrr á þessu ári meinaði fyrirtækið Bandaríkjaher að nota gervigreindarlíkön sín til að hafa eftirlit með bandarískum ríkisborgurum eða í hernaði, til dæmis við að velja skotmörk. Talsmaður Anthropic segir við AFP að fyrirtækið ætli að halda viðræðum við stjórnvöld áfram. Markmiðið sé að veita almenningi