Rekstraraðili gufubaðs á Ægissíðu ætlar að halda sínu striki þrátt fyrir deilur við Reykjavíkurborg um eignarhald skúra sem hýsa starfsemina. Borgarlögmaður telur borgina mögulega þurfa að fara dómstólaleiðina og telur einstakling hafa sölsað undir sig eign borgarinnar.