Eftir nokkurra ára hlé er aftur boðið upp á hornfirskan humar á Humarhátíð á Höfn, sem haldin er í 34. sinn um helgina.Í gærkvöld sungu Hornfirðingar í brekkusöng og í kvöld sneri humarinn aftur þegar gestum var boðið upp á humarsúpu. Í vor var gefið út leyfi til 40 daga tilraunaveiða á humri en þá hafði hann ekki verið við Íslandsstrendur frá 2021. Veiðarnar gengu vel og Hornfirðingar eru bjartsýnir á að geta boðið súpuna áfram næstu árin.„Það er okkur mjög gleðilegt að geta loksins farið aftur að kalla hana humarhátíð, þurfa ekki að kalla hana humarlausu humarhátíðina eins og við vorum farin að hafa áhyggjur af,“ segir Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, einn skipuleggjenda.Róslín Alma Valdemarsdóttir segir veislutjaldið vera hápunkt hátíðarinnar með tónlist og fjölbreyttri dagskrá.