„Eins og staðan er núna er náttúrulega mjög lítið hægt að gera til þess að forsendur bresti ekki. Það hefði þurft að grípa til þeirra aðgerða fyrr. Það er hins vegar hægt að gera mikið og ábyrgð aðila núna er að reyna að láta samninga halda og það er ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR stéttarfélags, um stöðu kjarasamninga eftir að ljóst varð að ársverðbólgan hækkaði lítillega í júní og mælist 5,2 prósent.