Landsréttur hefur staðfest sýknu íslenska ríkisins í máli einstaklings sem taldi sér hafa verið haldið í sóttkví á tímum COVID-19 með ólögmætum hætti.Forsaga málsins er sú að í nóvember árið 2021 var stefnandinn í málinu að koma heim frá Bretlandi. Hafði hann ekki forskráð sig inn í landið fyrir heimkomuna, líkt og var þá skylt að gera, framvísaði ekki vottorði, neitaði að gangast undir PCR-próf á Keflavíkurflugvelli og neitaði svo einnig að gangast undir slíkt próf fimm dögum eftir heimkomu, eins og honum þó bar að gera.