Alls eru 920 látin eftir tvo stóra jarðskjálfta sem riðu yfir Venesúela á miðvikudagskvöld. Skjálftarnir voru af stærðinni 7,5 og 7,2 en aðeins 38 sekúndur voru á milli þeirra.Tom Fletcher, yfirmaður hjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna, segir að enn sé um 50.000 saknað. La Guaira-héraðið norður af Caracas varð einna verst úti en þar er talið að vel á annað hundrað bygginga hafi hrunið til grunna. AÐSTÆÐUR VIRKILEGA KREFJANDI Fletcher segir aðstæður á svæðinu krefjandi og að björgunaraðgerðir séu virkilega flóknar og varaði hann við því að tala látinna gæti hækkað mikið á næstu dögum.Björgunarsveitir frá Mexíkó, El Salvador, Sviss og Spáni komu til Venesúela í morgun og hófu störf síðdegis, en fram til þessa hafa björgunarstörf að mestu verið á hendi sjálfboðaliða.Jarðskjálftarnir eru þeir