John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á fyrra kjörtímabili hans, hefur játað að hafa farið ranglega með leynileg skjöl. Hann gæti átt fangelsisdóm yfir höfði sér.Bolton starfaði fyrir Donald Trump á fyrra kjörtímabili forsetans. Bolton lét af störfum haustið 2019. Rannsókn á skjalameðferð hans hefur staðið allt frá forsetatíð Joe Bidens og henni hefur verið haldið áfram þótt Trump hafi tekið aftur við embætti.Bolton játar að hafa haft í vörslu sinni trúnaðarupplýsingar. Hann safnaði ýmsum minnispunktum um dagleg störf sín í Hvíta húsinu fyrir skrifin á bókinni The Room Where It Happened, endurminningar hans úr starfi sem þjóðaröryggisráðgjafa Trump. Minnispunktunum deildi hann í tölvupósti og smáskilaboðum og samkvæmt ákærunni var Bolton fullljóst