Landhelgisgæslan fylgist vel með til hafs í tengslum við hótun í garð hvalveiðiskipa og boðaðar aðgerðir Paul Watsons. Gæslan getur þó ekki meinað honum að sigla inn í íslenska efnahagslögsögu.Formaður Félags skipstjórnarmanna skorar á stjórnvöld að snúa skipi aðgerðarsinnans Pauls Watsons við áður en það truflar löglegar hvalveiðar við landið. Áætlað er að skip Watsons komi til landsins um helgina en hann hefur heitið því að ljúka því sem hófst 1986.Tveir liðsmenn samtaka á vegum Watsons, Sea Shepherd, sökktu tveimur hvalveiðiskipum 1986.Þá barst fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra símtal aðfararnótt þriðjudags þar sem hótað var að sprengja annað hvalveiðiskip Hvals hf. verði fleiri langreyðar skotnar. Lögregla mat hótunina ótrúverðuga en rannsakar málið. Hótunin var nafnlaus en hefur v