Saksóknari í máli Mariusar Borgs Høiby, sonar Mette-Marit krónprinsessu Noregs, ætlar ekki að áfrýja sýknudómum í málinu.Hann áfrýjar þó fjögurra ára fangelsisdóminum og óskar eftir nýju mati á refsingu, verði málið tekið upp að nýju.„Refsimörk fyrir nauðgun og ofbeldi í nánum samböndum eru í þróun og héraðsdómur hefur miðað við lægri refsimörk en saksóknari,“ er haft eftir Sturla Henriksbø, ríkissaksóknara í Noregi, í frétt NRK.Marius Borg Høiby var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líkamsárás og fjölmörg brot á nálgunarbanni auk annarra brota.Saksóknari krafðist þess að hann yrði dæmdur í sjö ára og sjö mánaða fangelsi en verjendur hans töldu hæfilega refsingu vera eitt og hálft ár. MIKIÐ ÁLAG FYRIR BROTAÞOLA AÐ ÁFRÝJA Høiby hefur þegar áfrý