Inga Sæland menntamálaráðherra hefur skipað Margréti Jónsdóttur Njarðvík í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti til fimm ára. Hún starfaði áður sem rektor Háskólans á Bifröst í sex ár.Hún er með MBA-gráðu í stjórnun frá HÍ og doktorsgráðu í spænsku og bókmenntum frá Princeton.Sjö sóttu um: * Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna * Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur * Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari * Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri * Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrv. rektor * Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur * Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari Margrét Jónsdóttir Njarðvík.RÚV