Borgarstjóri segir skýrt að borgin sé enn í stöðu til að semja um endurgjald fyrir bensínstöðvarlóðir. Borgarráð hafi ekki rætt við olíufélögin áður en ákveðið hafi verið að semja aftur við þau.Ráðið ætlar að skipa nefnd til að semja við lóðarhafa um uppbyggingu á bensínstöðvarlóðum og endurgjald á markaðsvirði. LÓÐIRNAR Í EIGU BORGARINNAR, EKKI OLÍUFÉLAGANNA Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mismikinn tíma eftir af lóðarleigusamningum olíufélaganna. Í einhverjum tilfellum séu örfá ár eftir en í öðrum áratugir. Lóðirnar séu í eigu borgarinnar.Fyrri borgarstjórn lét lóðirnar eftir endurgjaldslaust 2021 gegn því að þar yrðu byggð íbúðarhús en síðan hefur lítið frést af uppbyggingu. Ekki var lagt mat á hversu mikil verðmæti væru mögulega undir.Olíufélögin og félög þeim tengd hafa selt