Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, kallar eftir því að íslensk stjórnvöld grípi þegar í stað í taumana og komi í veg fyrir að aðgerðasinninn Paul Watson og samtök hans nái að trufla hvalveiðar við Ísland í sumar. Landhelgisgæslan eigi að hindra Watson í að koma nálægt skipum sem séu við löglegar veiðar. „LÖGREGLAN Á HAFINU VERÐUR AÐ BREGÐAST VIГ Árni segir það óásættanlegt að aðili sem lýsir yfir áformum um að stöðva löglega starfsemi fái að nálgast skipin óáreittur. Hann telur að grípa eigi til aðgerða áður en til átaka kemur.„Okkur sjómönnum er einfaldlega nóg boðið,“ segir Árni og bendir á að 28 sjómenn á hvalveiðiskipunum sæti því að komið sé fram við þá eins og glæpamenn. Hann segir alvarleikann mikinn fyrir áhafnirnar, sérstaklega í ljósi hótana um að sprengja sk