Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir verðbólgu ekki langt frá því sem stefnt var að. Vandinn sé bæði innfluttur og heimatilbúinn.„Ef ekki hefði komið til stríðs í Íran og ef hið opinbera hefði ekki hækkað gjaldskrár eins og gert var um síðustu áramót þá held ég að megi færa rök fyrir því að verðbólga væri innan vikmarka kjarasamninganna,“ sagði Bjarni Benediktsson í hádegisfréttum.Verðbólga í júní var 5,2 prósent og jókst um 0,1 prósentustig milli mánaða. Formaður VR sagði fyrirtæki sýna af sér fullkomið ábyrgðarleysi með verðhækkunum og stefna þannig kjarasamningum í hættu. Bjarni segir það rangtúlkun á stöðunni að skella skuldinni á fyrirtækin og segir laun hafa hækkað umfram það sem samið var um í síðustu kjaralotu.„Við erum með þetta viðmiðunarákvæði í kjarasamningum til að tr