Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þá verður rætt um Þingvelli, tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi staðarins.