Verða að sjá breytingar í sumar til að kjarasamningum verði ekki sagt upp

Verðbólga var 5,2 prósent í júní og jókst um 0,1 prósentustig milli mánaða.„Fyrst þarf að segja að þetta er talsvert mikil hækkun milli mánaða,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.„Það sem blasir núna við er það sem við höfum séð stefna í lengi, að forsendur kjarasamninga muni bresta í haust. Það er bara mjög alvarleg staða,“ bætir hún við.Hægt er að segja kjarasamningunum frá 2024 upp í haust ef ársverðbólga mælist yfir 4,7 prósentum. ASÍ, Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld eiga í viðræðum um þessa stöðu.Halla gagnrýnir verðhækkanir hjá fyrirtækjum.„Við lítum svo á að fyrirtækin hafi sýnt af sér fullkomið ábyrgðarleysi á gildistíma þessara kjarasamninga. Þau áttu að reyna að halda aftur af verðhækkunum.“ VERÐHÆKKANIR KEYRI ÁFRAM VERÐBÓLGUNA. „Þessi tilraun til að höfða til ábyrgða
Verða að sjá breytingar í sumar til að kjarasamningum verði ekki sagt upp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd