Neyðaróp berast úr rústum í Venesúela

Fólks er enn leitað í rústum bygginga í Venesúela þar sem jarðskjálftar af stærðinni 7,5 og 7,2 riðu yfir á miðvikudagskvöld. Jarðskjálftarnir voru þeir stærstu sem riðið hafa yfir Venesúela síðan árið 1900. Aðeins 38 sekúndur voru á milli þeirra.Í það minnsta 235 eru látnir og 4.300 slasaðir en óttast er að þeir séu mun fleiri. Verst er ástandið í La Guaira-héraði. Þar hafa meira en 100 byggingar hrunið til grunna. HÉLT SÉR Í DYRAKARMINN Heyrst hefur í fólki undir rústunum kalla á hjálp. Einni konu hefur verið bjargað lifandi.„Þegar jarðskjálftinn reið yfir hélt ég eins fast og ég gat í dyrakarminn. Svo fast að ég braut á mér fingurinn. Ég hélt mér fast í dyrakarminn þangað til gólfið hrundi,“ segir konan í myndskeiði frá breska ríkisútvarpinu, BBC, rétt eftir að henni var bjargað.Sérh
Neyðaróp berast úr rústum í Venesúela

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd