„Við sjáum að atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur aukist og samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 1.158 atvinnulausir núna í maí samanborið við 896 í maí í fyrra sem er 29% vöxtur á milli ára og var vaxandi milli áranna þar á undan,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, um samdrátt sem farinn er að gera vart við sig í byggingariðnaði.