Þann 1. júní var Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði lokað. Í dag verður opnuð í sama húsnæði afgreiðsla fyrir netverslun með áfengi. Afhendingarlagerar netverslana með áfengi hafa fram til þessa verið starfræktir á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.Það er vefverslunin Sante sem er að flytja áfengislager inn í gamla húsnæði Vínbúðarinnar í Kaupfélagshúsinu á Fáskrúðsfirði og opnar síðar í dag fyrir afhendingu á áfengi í samstarfi við Kjörbúðina á Fáskrúðsfirði.Vefverslun með áfengi er á gráu svæði lagalega og eitt af því sem áhöld hafa verið um er hvort að lager megi vera innanlands. Lögregla hefur sagt í fjölmiðlum að það megi ekki. Erlend vefverslun með áfengi er hins vegar lögleg. HEFUR EKKI ÁHYGGJUR AF LAGALEGRI STÖÐU Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í apríl þar sem starfsemi sambærileg þei