„Grundvöllur úrskurðarins var að ekki lá fyrir deiliskipulag áður en byggingarleyfið var samþykkt en ekki að starfsemi Samhjálpar væri óheimil á staðsetningunni.“Þetta segir í bókun sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær.Kaffistofa Samhjálpar, sem átti að vera á Grensásvegi 46 tímabundið, var tilbúin til notkunar þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi byggingarleyfi vegna hennar úr í vikunni. Aðeins vantaði tilskilin leyfi til að hefja starfsemi.Úrskurðurinn var lagður fram á borgarráðsfundinum. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstrisins lögðu fram bókanir við hann og harma að byggingarleyfi vegna kaffistofunnar hafi verið fellt úr gildi. „VINNA ÞARF AÐ VITUNDARVAKNINGU UM MÁLEFNI HÓPA SEM STANDA HÖLLUM FÆTI Í SAMFÉLAGINU“ Borgarfulltr