Tveir ungir menn lögðu líf sitt í hættu þegar þeir fóru án leyfis og öryggisbúnaðar yfir klettastíginn í Fálkaklettum við Esjurætur í nótt. Stígurinn er á vegum Fjallafélagsins. Haraldur Örn Ólafsson, eigandi Fjallafélagsins, segir að hann vilji alls ekki þetta verði fyrirmynd að fleiri glæfraferðum.„Það eru kannski margir sem vita ekki hvað þetta er, en það er rosalega mikilvægt að vera með réttan öryggisbúnað í þessu ævintýri. Við erum búin að fara með á annað þúsund manns í leiðina og allir rosa glaðir og allir öryggir en þarna kom upp atvik þar sem menn fóru um miðja nótt með engan öryggisbúnað og greinilega mjög illa búnir. Þeir fóru greinilega alla leiðina og það eru mjög hættulegir kaflar í henni.“Stígurinn er svokallaður via ferrata-stígur þar sem lagðir eru vírar í kletta og brú s