Fjallaleiðsögumanni brá verulega í brún þegar hann sá að tveir ungir menn höfðu haldið upp í Fálkaklett án nauðsynlegs búnaðar um miðja nótt í fyrrinótt. Þó að hann þekki það sjálfur að hafa verið ungur og vitlaus segir hann athæfi ungu mannanna stórhættulegt og geta hafa endað í stórslysi.