Hér í Brussel hefur hitinn verið nánast óbærilegur síðustu daga; svo mikill reyndar að þegar sá sem hér skrifar gekk heimleiðis í gær, með ofurlitla golu í fangið, var tilfinningin eins og að fá hárblásara aðeins of nálægt sér.Hitinn lækkar vissulega þegar sólin sest á kvöldin, og þá eru allir gluggar opnaðir upp á gátt (þeim er lokað og allt dregið fyrir á morgnana).En síðustu nætur hefur hitinn alltaf verið vel yfir tuttugu gráðum, sem er ekki uppskrift að góðum nætursvefni. (Undirritaður getur hins vegar upplýst að hann hefur aðgang að svefnherbergi í niðurgröfnum kjallara, þar sem hann hefur haldið til undanfarnar nætur).Þessi, eða álíka bragur hefur verið á lífi meira en hundrað milljón íbúa Evrópu undanfarna daga samkvæmt mati sem AFP fréttastofan gerði fyrr í vikunni. Fréttaveitan b