Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland

Ivanka Trump, dóttir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, er á Íslandi ásamt eiginmanni sínum Jared Kushner. Hjónin eru á landinu í einkaerindum og dvelja í um það bil viku.Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið, sem veitti þeim hefðbundna aðstoð við ferðalagið ásamt bandaríska sendiráðinu. Sú aðstoð snýr að samskiptum, öryggisgæslu og fleiru.Samkvæmt heimildum fréttastofu lentu þau á Akureyrarflugvelli í gær og fóru þaðan í Skagafjörð. Þar eru hjónin sögð dvelja á lúxushótelinu Deplum í Fljótunum.
Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd