Borgarráð samþykkti tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra í gær um að skipa nefnd til að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða um uppbyggingu og endurgjald á markaðsvirði fyrir aukinn og breyttan byggingarrétt ásamt nýjum lóðarleiguréttindum. Fyrri borgarstjórn lét lóðarhöfunum þær eftir endurgjaldslaust árið 2021 gegn því að þar yrðu byggð íbúðarhús en lítil uppbygging hefur orðið síðan.Samninganefndina skipa Óttar Pálsson lögmaður, Bjarki Rafn Eiríksson hjá fjármála- og áhættustýringasviði, Glóey Helgudóttir Finnsdóttir hjá umhverfis- og skipulagssviði og Ebba Schram borgarlögmaður. Óttar er formaður nefndarinnar.Starfshópnum er gert að skila ábyrgðarmanni tillögum fyrir lok fyrsta nóvember á þessu ári.2021 samþykkti borgarráð að olíufélögin fengju ákveðnar bensínstöðvalóðir með byggin