Stjórnvöld í Írak íhuga að segja sig úr OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja, ef ríkinu verður ekki heimilað að auka olíuframleiðslu sína umtalsvert. Þetta segja heimildarmenn innan úr olíumálaráðuneyti landsins við Reuters.Það yrði talsvert högg fyrir OPEC ef Írakar segðu sig úr samtökunum. Innan við tveir mánuðir eru síðan Sameinuðu arabísku furstadæmin gengu formlega úr OPEC. Írakar eru stofnfélagar í samtökunum og næststærsti olíuframleiðandinn innan þeirra, á eftir Sádi-Arabíu. VILJA AUKA DAGLEGA FRAMLEIÐSLU UM MILLJÓNIR TUNNA Samtökin voru stofnuð í september 1960 til að verja hagsmuni helstu olíuframleiðslulanda heims með því að samhæfa framleiðslu til að tryggja stöðugar tekjur fyrir aðildarríki.Útflutningskvóti Íraks fyrir júlí er nærri 4,4 milljónir olíutunna á dag. Kvótinn er