Hefur greitt andvirði fimm milljarða í skatta síðan hann varð konungur

Karl Bretakonungur hefur greitt yfir þrjátíu milljónir punda, eða rúmlega fimm milljarða íslenskra króna, í skatta frá því hann varð konungur í september 2022.Karl birti skattskýrslu sína í dag og er fyrsti konungborni þjóðhöfðinginn í Bretlandi sem gerir það.Vilhjálmur sonur hans gerði slíkt hið sama. Hann hefur greitt yfir 20 milljónir punda, eða ríflega þrjá milljarða íslenskra króna, í skatta frá því hann varð prins af Wales.Konungshöllin segir að það hafi verið persónuleg ákvörðun feðganna að birta skattskýrslur sínar. Það er sagt liður í því að auka gagnsæi. Frekari útlistun á því hvernig skattarnir voru reiknaðir hefur ekki verið gefin upp. Þó kemur fram á vef BBC að konungurinn hafi greitt skatta í hæsta skattþrepi.Karl Bretakonungur fær tekjur af landareign sinni í hertogadæminu L
Hefur greitt andvirði fimm milljarða í skatta síðan hann varð konungur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd