Svartur reykur stígur til himins eftir drónaárás Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í útjaðri Moskvu í síðustu viku.EPA / StringerÍ það minnsta 28 drónum sem stefnt var að Moskvu voru skotnir niður á um klukkutíma tímabili í kvöld. Frá þessu greinir Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu á Telegram.Hann segir yfivröld vinna að því að finna út hvar brak drónanna féll til jarðar.Drónaárásir Úkraínumanna gegn Rússum hafa færst í aukana á síðustu mánuðum. Þær hafa einkum beinst að orku- og olíuinnviðum í Rússlandi. Tilgangur þeirra hefur verið að skerða tekjur stjórnvalda í Kreml og gera þeim þannig erfiðara fyrir að fjármagna stríðsrekstur sinn.Mikill eldur kviknaði í olíuhreinsistöð suðaustur af Moskvu í síðustu viku eftir árás Úkraínuhers.