Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga en tillögur voru unnar fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga í janúar 2021. Lagaprófessor segir brýnt að setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi á meðan skortur er á settum lögum. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og allur gangur á því hvernig samið er við lóðarhafa. Lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst.Af öllum lóðum í Reykjavík eru 95% leigulóðir, þ.e. sveitarfélagið á lóðina og leigir hana fólki og fyrirtækjum sem búa og/eða starfa á þessum lóðum. Lóðaleigusamningar renna út. Hér á landi er ekki til nein heildarlöggjöf um lóðaleigurétt eða hvernig skuli halda á málum að samningstíma loknum.Í fasteignum sem eru heimili reyn