Landsbjörg undirbýr sig fyrir hálendisvakt

Árleg hálendisvakt Landsbjargar er hafin í tuttugasta sinn. Fyrsti hópur sjálfboðaliða er nýkominn í Landmannalaugar til að vera til taks á háannatíma í fjallaferðum. Fréttastofa leit við hjá björgunarsveitinni Súlum á Akureyri, þegar þau voru að búa sig undir fyrstu vaktina í gær.Björgunarsveitarfólk var í óðaönn að pakka niður búnaði, nesti, fötum og hreinlætisvörum. Með í för eru meðal annars vikubirgðir af klósettpappír og kókómjólk fyrir fimmtán manns.Þá gerði fréttastofan sér ferð í Landmannalaugar til að fylgjast með hópnum koma sér fyrir. Björgunarsveitir landsins skiptast á vöktum og verkefnin eru fjölbreytt. Elva Dögg Pálsdóttir úr Súlum segir að helstu verkefnin séu að aðstoða bíla sem eru fastir í vöðunum, upplýsingagjöf og forvarnir til ferðamanna ásamt fyrstu hjálp.
Landsbjörg undirbýr sig fyrir hálendisvakt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd