Börn á grunnskólaaldri í Reykjavík fá ekki lengur öll frítt í Strætó eftir að ný borgarstjórn afturkallaði samþykkt síðasta borgarstjórnarmeirihluta þess efnis, rétt tæpum tveimur mánuðum eftir að breytingarnar tóku gildi en borgarstjórnin telur breytingarnar of kostnaðarsamar. Börn 11 ára og yngri fá eftir sem áður frítt í Strætó.