Hildur Björnsdóttir borgarstjóri skrifaði í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins síðdegis að frekari breytingar væru í farvatninu eftir þær sem samþykktar voru af borgarráði í dag.„Á næstu vikum og mánuðum verða kynntar frekari tillögur af þessu tagi sem ná til annarra þátta í rekstri borgarinnar en hagræðingarhópur borgarstjórnar vinnur nú að þeim,“ skrifar hún.Einnig stendur til að gera áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum á næstunni.Í bréfinu sagði Hildur að breytingarnar sem samþykktar voru á borgarráðsfundi í dag væru erfiðar en jafnframt nauðsynlegar. Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkur var sagt upp eða fært til í starfi. Tvær skrifstofur voru lagðar niður og öllum upplýsingafulltrúum sagt upp.„Við gerum okkur fulla grein fyrir því að ákvarðanir af þessu