Hefja brottvísanir fanga fyrir mánaðamót

Níu föngum verður vísað úr landi á næstu tveimur vikum. Það er gert í skjóli heimildar til að brottvísa erlendum föngum eftir að þeir hafa afplánað þriðjung refsitíma. Sá fyrsti verður sendur úr landi fyrir mánaðarmót.„Þetta er fyrst og fremst það sem við höfum talað um sem svona burðardýr, innflutningur fíkniefna, fólk sem hefur engin tengsl við landið, aldrei búið hér, aldrei væntanlega ætlað sér að vera hér,“ segir Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar.Með nýlegri breytingu á lögum um fullnustu refsinga er gefin tímabundin heimild til að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar einn þriðji refsitímans er liðinn.„Viðkomandi verður að því loknu tafarlaust vísað úr landi og sætir í framhaldinu endurkomubanni til landsins og á Schengen
Hefja brottvísanir fanga fyrir mánaðamót

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd