Til skoðunar er að setja upp sjö stafa símanúmer í Neyðarlínuna á meðan enn eru tæki í umferð sem ekki ná sambandi við hana. Þegar slökkt var á 2G- og 3G-sendum á landinu lentu nokkrir farsímaeigendur í því að geta ekki hringt neyðarsímtöl þrátt fyrir að geta hringt annað. Það er vegna þess að sumir símar eru þannig forritaðir að þeir leita í neyðarham og á 3G-senda þegar þeir hringja neyðarsímtöl. Þar sem búið er að slökkva á sendunum á Íslandi ná eigendur þessara síma ekki í gegn í 112.Neyðarlínan er með númerið 112. Neyðarlínan er líka með númerið 570-2112 sem Íslendingum erlendis er bent á að hringja í ef þeir þurfa að ná sambandi við Neyðarlínuna. Þá er einnig hægt að hafa samband í gegnum gervihnött í síma 809-0112.Þetta kemur fram í upplýsingum frá Elko til viðskiptavina 16. júní. Ó