„Það fylgir auðvitað mínu starfi að taka erfiðar ákvarðanir,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri um umfangsmiklar uppsagnir á skrifstofu hennar og borgarritara í dag.Í samtali við fréttastofu segir hún ákvörðun um hagræðingaraðgerðir ekki hafa verið tekna af léttúð. Hún hafi aftur á móti verið nauðsynleg. Borgin hafi gert kröfu til sviðstjóra um hagræðingar og því sé eðlilegt að hún sem borgarstjóri sýni gott fordæmi og taki af skarið.„Þegar breytingin hefur komist til framkvæmda að fullu og ráðið hefur verið inn í einhver ný hlutverk þá mun skrifstofan hafa minnkað um að minnsta kosti 40 prósent,“ segir Hildur.Borgarstjóri segir það hafa verið erfiða ákvörðun að segja upp stórum hluta skrifstofu borgarstjóra. Ekki standi til að útvista öllum verkefnum. AÐALLEGA LAUNAKOSTNAÐUR Áætla