Fjárhagsstaða hefur meiri áhrif á líðan en áður

Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu, svefni, streitu, einmanaleika, hamingju og velsæld fullorðinna á Íslandi undanfarinn áratug. Í ljós kom að flestar mælingar sem embættið hefur vaktað með reglubundnum hætti í tengslum við líðan hafa staðið í stað eða þróast til verri vegar.Þá vakti athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Sjónum er beint að samspili fjárhagsstöðu og andlegrar líðanar í Þetta helst í dag.Verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis segir stjórnvöld þurfa að bregðast við auknum ójöfnuði þegar kemur að heilsu. Mikill munur sé á líðan fólks eftir fjárhag. „SLÁANDI AÐ SJÁ ÞETTA ALLT K
Fjárhagsstaða hefur meiri áhrif á líðan en áður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd