Samfylkingin reyndi að lægja öldur innan flokksins á fundi í gær þar sem ný lög um brottvísunarstöð voru rædd. Fjöldi flokksmanna hefur lýst yfir mikilli óánægju með lögin.Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar fór yfir efni laganna á fundinum og meðferð málsins á Alþingi. Hann segir yfir hundrað manns hafa sótt fundinn þar sem gott andrými hafi verið til að fara á dýptina í umræðunni.Hann segir fundi eins og þennan mikilvæga fyrir samtalið innan flokksins. „Það voru þarna mjög málefnalegar umræður og fjöldi fólks sem tók til máls og fór vel yfir þær áhyggjur sem menn hafa af þessu,“ segir Víðir.„Innan Samfylkingarinnar er mikið af fólki sem þekkir þennan málaflokk vel, hefur unnið í honum, bæði sem sjálfboðaliðar, lögfræðingar og embættismenn í kerfinu. Þannig að það var farið vel yf